Yngvi Guðmundsson
Yngvi Guðmundsson er með M.Sc. gráðu í vélaverkfræði frá Stellenbosch háskólanum í Suður-Afríku og B.Sc. frá vélaverkfræðideild frá Háskóla Íslands. Yngvi er framkvæmdastjóra þróunar og framkvæmda HS Orku, en hann réðst til starfa sem yfirverkfræðingur hjá fyrirtækinu árið 2017. Yngvi ber ábyrgð á þróunar-og fjárfestingaverkefnum fyrirtækisins, þar með talið nýframkvæmdum. Áður en Yngvi gekk til liðs við HS Orku var hann verkefnastjóri jarðhitaverkefna hjá Verkís á árunum 2012-2017 og þar á undan verkefnastjóri hjá ÍAV við byggingu Hörpunnar árin 2007-2010. Yngvi er stundakennari við jarðhitaskóla GRÓ (jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna) auk þess sem hann sinnti stundakennslu við Háskóla Íslands um fjögurra ára skeið.