Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða

5O5A5840

Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús

Loftslags- og orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús á Íslandi. Markmið styrkjanna er að stuðla að uppbyggingu hleðsluinnviða á sameiginlegum bílastæðum fjöleignarhúsa og styðja við húsfélög sem standa frammi fyrir sérstaklega kostnaðarsamri uppbyggingu á slíkum innviðum.

Markmið

Styrkjunum er ætlað að:

  • Auðvelda húsfélögum í fjölbýlishúsum að uppfylla lögbundnar skyldur sínar um að bjóða upp á hleðslumöguleika þegar eigendur óska þess.
  • Veita markvissan stuðning þar sem kostnaður við nauðsynlega innviðauppbyggingu er sérstaklega hár.
  • Stuðla að bættu aðgengi íbúa í fjölbýlishúsum að hleðsluinnviðum.

Hverjir geta sótt um

Umsækjendur skulu vera húsfélög fjöleignarhúsa sem skráð eru sem lögaðilar. Einstaklingar geta ekki sótt um. Styrkhæf eru eingöngu fjölbýlishús með a.m.k. 8 íbúðir þar sem byggingarleyfi var gefið út áður en breyting á byggingarreglugerð nr. 112/2012 tók gildi 20. júní 2018. Fjölbýlishús sem hafa þegar komið upp hleðslustöðvum á sameiginlegum bílastæðum eru ekki styrkhæf. Sjá nánar í handbók.

Styrkhlutfall og hámark

Styrkhæfir kostnaðarliðir eru eftirfarandi:

  • Lagnaleiðir frá rafmagnstöflu að hleðsluinnviðum við sameignarstæði.
  • Stækkun, færsla eða ný heimtaug fjölbýlishússins (þar sem dreifiveita staðfestir þörf).
  • Sjá nánari útlistun á styrkhæfum kostnaði í handbók. Húsfélög geta sótt um vegna annars eða beggja kostnaðarliða eftir aðstæðum. Styrkur er reiknaður sameiginlega fyrir báða kostnaðarliði.
  • Grunnframlag íbúa er að lágmarki 75 þús. kr. á hverja íbúð.
  • Styrkhlutfall: allt að 50% af styrkhæfum kostnaði umfram grunnframlag íbúa.
  • Hámarks styrkupphæð á hvert verkefni: 5 m.kr. samtals.
  • Lágmarks styrkupphæð á hvert verkefni: 300 þús. kr. samtals.

Helstu skilyrði verkefna

  • Byggingarleyfi fjölbýlishússins var gefið út fyrir 20. júní 2018 (reglugerð nr. 669/2018).
  • Framkvæmdir taka eingöngu til sameiginlegra bílastæða og sameiginlegrar innviðauppbyggingar, ekki einkastæða.
  • Fjölbýlishúsið hefur engar hleðslustöðvar á sameiginlegum bílastæðum.
  • Vegna stækkunar, færslu eða nýrrar heimtaugar skal dreifiveita staðfesta með skriflegum hætti að framkvæmdin sé nauðsynleg, jafnvel með álagsstýringu, og veita kostnaðarmat.
  • Vinna við raflagnir og tengingar skal unnin af löggiltum rafverktaka. Fylgja skal leiðbeiningum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um hleðslu rafbíla og raflagnir.
  • Styrkir eru greiddir út þegar hleðslustöðvar eru komnar í notkun.
  • Styrkur nær ekki til kaupa á hleðslustöðvum.

Nánari skilyrði má finna í hér. 

Umsóknarfrestur

Opnað verður fyrir umsóknir 22. maí 2026 og lokafrestur er til 1. október 2026 kl. 15:00. Umsóknir skulu berast í gegnum rafrænt umsóknarkerfi á orkusjodur.is.