Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 09-16

Samfélagssjóður HS Orku

Sækja um

Næsta styrkveiting og umsóknarfrestur

Samfélagssjóður HS Orku hefur það að markmiði að styðja við samfélagslega jákvæð verkefni einstaklinga eða hópa og eru styrkir veittir tvisvar sinnum á ári. Næsta úthlutun er 15. maí 2024 og opið verður fyrir umsóknir gegnum umsóknarsíðu frá 1. apríl til og með 30. apríl 2024. Seinni styrkveiting ársins verður 15. október og opnað verður fyrir umsóknir þann 1. september.

Hvernig verkefni styður sjóðurinn?

Verkefni sem hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag, lífsgæði og mannlíf. Tekið er á móti umsóknum um styrki frá öllum landshlutum en sérstök áhersla er lögð á að styðja verkefni í nágrannabyggðum starfsstöðva fyrirtækisins. Við val á verkefnum er m.a. litið til þeirra heimsmarkmiða um sjálfbæra þróun sem HS Orka hefur innleitt:

Umsóknir skal senda rafrænt gegnum umsóknarsíðu sjóðsins á heimasíðu. Samfélagsráð HS Orku fer yfir umsóknir og tilkynnir styrkveitingar. Fyrirspurnir sem varða umsóknir má senda á styrkir@hsorka.is.

Úthlutunarviðmið Samfélagssjóðs HS Orku

Sjóðurinn veitir styrki til skýrt skilgreindra verkefna og atburða. Styrkir eru veittir einstaklingum, hópum, sjálfseignarstofnunum og félagssamtökum sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni.

Að jafnaði eru styrkir á bilinu 100 til 500 þúsund krónur. Í undantekningartilvikum geta hærri styrkveitingar komið til álita. Gert er ráð fyrir að styrkir séu nýttir að fullu innan 12 mánaða frá styrkveitingu.

Verkefni sem koma helst til greina:

  • Verkefni sem tengjast samfélags- og umhverfismálum, sjálfbærni og orkuskiptum.
  • Verkefni tengd lýðheilsu, menntun, fræðslu og forvörnum, æskulýðsstarfi, menningu og listum.
  • Verkefni sem skírskota til þeirra heimsmarkmiða um sjálfbæra þróun sem HS Orka hefur innleitt.

Verkefni sem koma almennt ekki til greina:

  • Sjóðurinn veitir ekki rekstrarstyrki eða styrki vegna markaðsstarfs.
  • Sjóðurinn veitir almennt ekki náms- eða ferðastyrki. Ferðakostnaður getur þó eftir atvikum verið hluti af framkvæmd verkefna sem sjóðurinn styður.
  • Sjóðurinn veitir ekki styrki vegna rannsóknar- eða þróunarverkefna á vegum háskóla, stofnana, fyrirtækja eða einstaklinga.