Brúarvirkjun
Tungufljót
á upptök sín ofan af Haukadalsheiði og rennur í Hvítá við bæinn Bræðratungu.
HS Orka áformar að reisa rennslisvirkjun í efri hluta Tungufljóts í
Biskupstungum í þeim hluta árinnar sem rennur milli jarðanna Haukadals II og
Brúar ofan þjóðvegar að Gullfossi.
Umfang Brúarvirkjun er tiltölulega lítið og staðsetning heppileg með tillit til sjónrænna áhrifa. Aðalstífla lægi þvert yfir farveg Tungufljóts rétt ofan við ármót Stóru-Grjótár og þaðan yrði áin leidd í um 1700 metra löngum neðanjarðar aðrennslisgöngum að stöðvarhúsi.
Helstu kennistærðir Brúarvirkjunar | Eining | |
---|---|---|
Uppsett rafafl | 9,9 | MWe |
Fallhæð | 49 | M |
Meðalrennsli til virkjunar | 23,6 | M3/s |
Raforka | 82,5 | GWst/ári |
Nýtingartími | 8200 | klst/ári |
Eignarhald:
- 100% HS Orka
Staða verkefnis:
- Rannsóknarleyfi
- Auðlindasamningur við landeigendur
- Mat á Umhverfisáhrifum - lokið
- Samþykkt aðal- og deiliskipulag
- Framkvæmdarleyfi
- Virkjunarleyfi