Vinna við framkvæmdir byggingar OV6, í Svartsengi eru í fullum gangi og eru á
áætlun. Orkuver 6 verður eimsvalavirkjun með nokkuð sérstæðum gufuhverfli.
Aflgeta hverfilsins verður allt að 30 MW. Hverfileiningin verður ekki
grunnaflseining heldur fylgir álag hennar að verulegu leiti hitaveitu- og
rafmagnsálagi hverju sinni. Staður stöðvarhúss verður norðan núverandi
orkuversbygginga í Svartsengi, nánar tiltekið á þeim stað þar sem upphaflega
Bláalónið var.
Orkuver 6 notar háan þrýsting gufuholanna SVA H 10, 16 og 20, en
inntaksþrýstingur 33 MW gufuhverfilsins verður 15 bör. Gufumagn við inntak
verður um 80 kg/s. Við 5,7 bar þrýsting í hverflinum er rúmlega helming gufunnar
hleypt yfir á vél 11 í Orkuveri 5. Restin af gufunni heldur síðan áfram í gegnum
hverfilinn niður í 0,07 bara þrýsting ( 93% vakúm). Einnig er haft inntak á
hverflinum frá gufulögn að Ormat vélum. Það gerir að verkum að hverfillinn getur
tekið við hlutverki allt að þriggja Ormat véla ef þær eru í upptekt. Hvert
inntak og úttak er með tvo stúta og eru því samtals átta stútar á vélinni, til
viðbótar við endaúttakið fyrir eimsvalagufuna. Hönnuðir vélarinnar hjá Fuji
Electric kalla hana “kolkrabbann” (tako á japönsku) vegna allra gufustútanna..
Kæliturn sér um að kæla kælivatnið, sem notað er á eimsvalann.
Aðalverktaki byggingarframkvæmdirnar er Eykt ehf og er öll byggingarstjórn í
þeirra höndum. Verkeftirlit annast Verkfræðistofa Suðurnesja.
Undirverktaki Eyktar vegna framkvæmda er nokkrir. Steypuvinna er í höndum þýska
fyrirtækisins Pro Work. Að jafnaði hafa 15 til 20 iðnaðarmenn frá því fyrirtæki
verið við vinnu frá því að bygging hófst í ágúst 2006. Undirverktaki Eyktar við
pípulagnir er Alhliða pípulagnir, 2 til 3 starfsmenn frá þeim hafa unnið við
verkið að staðaldri. SRS er rafverktaki og hafa 1 til 2 verið við vinnu frá þeim
síðan að verkið hófst. Undirverktaki Eyktar vegna jarðvinnu er fyrirtækið
Jarðvélar, en vegna virkjunarinnar verður lögð ný kaldavatnslögn frá
vatnsverndarsvæðinu norðan Svartsengis og að orkuverinu alls um tveggja
kílómetra leið.
Samhliða byggingarframkvæmdum hefur verið unnið að lagningu nýrra lagna vegna
framleiðslu Bláa Lónsins á heilsuvörum, frá orkuverinu að nýrri þró sem byggð
hefur verið. Þetta tengist aukinni eftirspurnar í snyrtivörur og smyrsl frá Bláa
Lóninu Þann 11. desember 2006 hófst vinna við að stálvirki stöðvarhússins, en
stálvirkið er framleitt í Póllandi og unnu 9 starfsmenn frá pólska
undirverktakanum KM Bygg við að reisa stálgrind stöðvarhússins.
Vegna framkvæmdanna hefur Eykt ehf reist vinnubúðir og skrifstofur. Reiknað er
með að á verktíma muni allt að 50-60 manns búa á vinnusvæðinu.
Þann 3. maí 2007 var vélbúnaður og rafall virkjunarinnar sem framleiddur er af
Fuji í Japan hífður frá borði m/s Cec Fighter í Helguvík.
Búnaðurinn sem samanstendur meðal annars af nokkrum stórum og þungum stykkjum
svo sem gufuhverfli og rafal hífð á vagn frá flutningafyrirtækinu ET, sem sá um
flutning á búnaðinum í stöðvarhúsið. Nokkru áður hafði eimsvali sem er hluti
vélarbúnaðar sem framleiddur er af þýska fyrirtækinu Balce-Duerr verið skipað
upp í Reykjavík.
Það er skemmst frá því að segja að allur flutningur og hífingar á þessum þunga
búnaði tókst með miklum ágætum. Það má þakka góðum undirbúningi góðum búnaði
meðal annars. sérsmíðuðum vagni sem er í eigu ET og kunnáttu bæði starfsmanna
ET, GP Krana, Héðins/Altaks, Eyktar, HS og annarra verktaka sem komu að verkinu.
Þess skal getið að þyngstu einstöku stykkin voru gufuhverfill sem er um 93 tonn,
rafall sem er um 85 tonn og eimsvali er um 70 tonn.
Framkvæmdir við afstillingu gufuhverfils og rafals hófst þegar að hífingum
loknum. Sú vinna auk allrar tengingar lagna og annars vélbúnaðar er í höndum
Héðins/Altaks sem eru aðalverktakar við þessa vinnu. Eftirlit þessara framkvæmda
er í höndum Fuji, Verkfræðistofu Suðurnesja og Fjarhitunar
Rafal er aðalverktaki við frágang og tengingu rafbúnaðar vegna vélbúnaðarins.
Vélsmiðja Héðin sá um smíði og uppsetningu á dropaskiljum stöðvarhússins en þar
er um þrennskonar skiljur að ræða, há- mið- og láþrýstingsskiljur. Ástæða fjölda
skilja má rekja til hönnunar gufuhverfilsins „Kolkrabbinn“ er gufuhverfill með
inntök fyrir gufu á mismunandi þrýstingi til að auka nýtingu þeirrar gufu sem
til reiðu er.
Vinna við aðveituæð frá HSH #21 er lokið og hefur lögnin verið tengd við
skiljustöð. Unnið er að einangrun og klæðningu aðveitulagna frá austursvæðinu
sem endurnýjaðar hafa verið samfara byggingu OV6. Aðalspennir fyrir OV6 verður
tengdur að rofabúnaði í OV5. Þegar fullum afköstum er náð mun framleiðsla OV6
nema um 30 MW.
Lögð hefur verið áhersla á að vinna við framkvæmdina verði slysalaus og umgengni
við umhverfið verði til fyrirmyndar. Krafist er að allir starfsmenn bæði HS hf,
verktaka og undirverktaka sem koma að verkinu sitji námskeið um öryggis og
umhverfismál. Umferð um svæðið hefur verið takmörkuð og mikil áhersla er lögð á
að starfsmenn noti þann öryggisbúnað sem krafist er.
Þessa dagana er verið að vinna við lokafrágang á nýjum 30 MW hverfli í
Svartsengi og hefur þessi nýjasta viðbót við orkuverið verið kölluð orkuver 6.
Nú er unnið að prófunum og uppkeyrslu hverfilsins og fór hann fyrst að snúast
laugardaginn 7. desember. Í gær eða þann 11. desember hófst síðan
raforkuframleiðslan og var vélin keyrð upp í 4,5 MW en þá kom fram smávægileg
villa í tengingum sem var lagfærð og hún síðan keyrð upp í 8 MW og keyrð þannig
í nokkrar klukkustundir. Í dag er ráðgert að fara upp í 15 MW framleiðslu og
síðan upp í 30 MW á föstudaginn. Síðan verður stoppað og hlutirnir yfirfarnir en
18 eða 19. desember á vélin að vera tilbúin í rekstur og eykst þá framleiðslan
eins og gufukerfið leyfir, en þar er eftir að ljúka ákveðnum hlutum þannig að
væntanlega verður ekki um fulla 30 MW aukningu að ræða fyrr en með vorinu.