Orkuver 6 er eimsvalavirkjun með nokkuð sérstæðum gufuhverfli. Aflgeta
hverfilsins er allt að 30 MW.
Hverfileiningin er ekki grunnaflseining heldur fylgir álag hennar að verulegu
leiti hitaveitu- og rafmagnsálagi hverju sinni. Staðsetning stöðvarhúss er
norðan núverandi orkuversbygginga í Svartsengi, nánar tiltekið á þeim stað þar
sem upphaflega Bláalónið var.
Orkuver 6 notar háan þrýsting gufuholanna SVA H 10, 16 og 20, en
inntaksþrýstingur 33 MW gufuhverfilsins verður 15 bör.
Gufumagn við inntak er um 80 kíló á sekúndu. Við 5,7 bar þrýsting í hverflinum
er rúmlega helming gufunnar hleypt yfir á vél 11 í Orkuveri 5. Restin af gufunni
heldur síðan áfram í gegnum hverfilinn niður í 0,07 bara þrýsting (93% vakúm).
Einnig er haft inntak á hverflinum frá gufulögn að Ormat vélum. Það gerir að
verkum að hverfillinn getur tekið við hlutverki allt að þriggja Ormat véla ef
þær eru í upptekt. Hvert inntak og úttak er með tvo stúta og eru því samtals
átta stútar á vélinni, til viðbótar við endaúttakið fyrir eimsvalagufuna.
Hönnuðir vélarinnar hjá Fuji Electric kalla hana kolkrabbann
(tako á japönsku) vegna allra gufustútanna.
Hér til hliðar smá smella á og skoða mynd af hverflinum (gulur hringur utan um
hann) í miðju röravirki virkjunarinnar.
Kæliturn sér um að kæla kælivatnið sem notað er á eimsvalann, kæliturninn er
dökkgráa byggingin til vinstri á myndinni hér með.
Kynningarbæklingur sem útgefinn var við vígslu orkuvers 6