Bygging orkuvers fimm í Svartsengi fór af stað vegna nauðsynlegrar endurnýjunar
elsta hluta orkuversins í Svartsengi , (þ.e. Orkuver eitt frá 1977) og stækkunar
til framtíðar ásamt því markmiði að nýta jarðhitakerfið á sem hagkvæmastan hátt.
Orkuver fimm var tekið í notkun til raforkuframleiðslu í byrjun nóvember 1999 en
heitavatnsframleiðsla í orkuverinu hófst í lok febrúar 2000.
Orkuver fimm er virkjun með 30 MW eimsvala hverfli og 75 MW varmaskiptakerfi
ásamt gasdælum og gufuþeysum , sér gufuveitu, þéttivatnskerfi, forskilju- og
rakaskiljustöð, kæliturn, stjórnherbergi, spennum og rofastöð.
Í orkuveri fimm er notuð um 75 kg/sek af 160 °C gufu við 5,5 bar þrýsting inn á
hverfil. Þessi hverfill sem er hannaður með 10 þrepum og með þremur gufuúttökum
fyrir varmaskiptakerfi orkuversins.
Sú gufa sem fer um öll þrepin endar í eimsvala en þar nýtist hún við að hita
forhitað vatn frá orkuveri fjögur úr um 25°c í um 38°C.
Frá úttaki tvö sem er eftir fimmta þrep fer gufa að eftirhiturum um 117°c heit
og hitar vatnið áfram í um 94°c þaðan fer það í afloftara og síðan um
lokahitara, sé þess þörf.
Þá er notuð gufa sem er 133°c frá úttaki eitt sem er eftir þriðja þrep hverfils.
Í lokahiturum er vatnið hitað eftir þörfum oftast í 100-105 °c Þaðan fer vatnið
frá orkuveri um stofnæð að dælu og blöndunarstöð Fitjum. Raforku framleiðsla 30
MW hverfils orkuveri fimm hefur verið að jafnaði um 255 GW stundir á ári, árin
2000-2006 og er nýting hverfilsamstæðu því um 97%.