Orkuver þrjú er raforkuver með sex MW mótþrýstigufuhverfil. Inn á hverfil fer um
40 kg/sek af gufu við fimm bar þrýsting og 160°c hita. Frá hverfli fer gufa með
um 0,2 bar þrýsting sem er um 103°c heit inn á varmaskiprakerfi orkuvers tvö og
einnig inn á sjóðara fyrir Ormathverfla í orkuveri fjögur.
Hverfillinn er frá FUJI í Japan og var gangsettur 20. desember árið 1980 til
raforkuframleiðslu út á netkerfi landsins. Hverfilinn er stöðvaður einu sinni á
ári í um tvær vikur til hreinsunar og viðhaldsvinnu. Á árinu 2005 voru
framleiddar 46 GWst með þessum gufuhverfli. Nýting hverfilsins í framleiðslu
hefur verið almennt um og yfir 90%