Orkuver tvö var byggt á árunum 1979–80 og tekið í notkun það ár. Í orkuveri tvö
eru þrjár varmaskiptarásir sem hver getur afkastað 75 l/s af 125°C vatni, sem er
3 x 25 MW eða 75 MW samtals.
Ferska vatnið er fyrst forhitað úr 4°C í 25°C í eimsvölum Ormat-hverfla, síðan
afloftað og hitað í orkuveri tvö með lágþrýstigufu í varmaskiptasúlum í um 80°C.
Þá er það hitað í um 100°C í plötuvarmaskiptum með 102°C-105°C gufu frá útrás
gufuhverfils, og að endingu er hitaveitu vatnið yfirhitað í 101°C-110°C í
plötu-varmaskiptum og er það gert með háþrýstigufu.