Gönguleið um Reykjaveg er skipt upp í nokkra áfanga. Gengið er út frá því að
gangan hefjist við Reykjanesvita.
Hvern áfanga er hægt að ganga á einum degi og láta sækja sig að honum loknum eða
láta fyrirberast í tjaldi eða undir þaki, þar sem því verður við komið.
Hér að neðan má sjá tillögur að áföngum:
- Reykjanesviti – Þorbjörn (Bláa lónið) 19 km
- Þorbjörn – Leirdalur 13 km
- Leirdalur – Djúpavatn 14 km
- Djúpavatn – Kaldársel 18 km
- Kaldársel – Bláfjöll 16 km
- Bláfjöll – Hamragil 20 km
- Hamragil – Nesjavellir 14 km
Víðast eru leiðirnar merktar með bláum stikum og bent er á afleiðir til
áhugaverðra staða eða nærliggjandi bæja. Leiðirnar liggja um mólendi, mosagróin
hraun, sand og mela. Þetta mun vera ein lengsta merkta gönguleið landsins og á
áfangastöðum á að vera aðgangur að fersku vatni og salerni a.m.k. Þó verður að
gæta þess, að við Höfða, skammt frá Fagradalsfjalli er engin slík aðstaða. Þar
verður að nota neysluvatn, sem fólk ber á sér sjálft. Komin er út kortabókin
Reykjavegur með nánari leiðarlýsingu. Hún fæst á flestum stöðum, sem selja
ferðatengt efni.
Prestastígur
Prestastígur er gömul þjóðleið sem var gengin á milli Hafna og Grindavíkur
leiðin er vel vörðuð alla leið. Nafnið Prestastígur er nýlegt heiti á fornri og
fyrrum fjölfarinni þjóðleið á Reykjanesi, sú skýring er þó líkleg að með
.prestakallalögum frá árinu 1907 var Kirkjuvogssókn í Höfnum lögð til
Staðarprestakalls í Grindavík og hefur því Staðarprestur oft átt erindi um þessa
fornu leið. Þegar þessi forna þjóðleið er farin frá Höfnum liggur leiðin frá
Kalmanstjörn um Hafnarsand fyrir norðan Presthól og um Kinn, þar sem farið er
ofan í sigdalinn upp af Stóru Sandvík, þaðan hjá Haug og yfir Haugvörðugjá og
síðan með rótum Sandfellshæðar. Þar fylgir gatan hraunjaðri Eldvarpahrauns. Á
vegi okkar verður þá nýlegur vegaslóði sem er tilkominn vegna lagningar
ljósleiðara. Þegar kemur á móts við Rauðhól er farið yfir hraunhaft að hólnum og
síðan hjá Eldvörpum og yfir Hrafnagjá og þaðan að Húsatóftum í Sataðarhverfi.
Leiðin er um það bil 12 kílómetra löng og tekur um 5 klukkustundir að ganga
hana.