|
|
|
Vestmannaeyjar
Vatnið sem notað er til upphitunar er það sama og neysluvatnið
kemur undan Eyjafjallajökli og er því dælt um
sjóleiðslur til Vestmannaeyja. Raforkan sem notuð er við
gufuframleiðsluna er afgangsorka frá Landsvirkjun.
Samhliða raforkunni er nýttur varmi frá Sorpeyðingastöð
Vestmannaeyja og frá fiskimjölsverksmiðjum í Eyjum
þegar þær eru í gangi. Um 15 % orkunnar fæst með
þessu móti. 20MW rafskautaketill framleiðir gufu sem leidd er í
tvo 10MW
varmaskipta sem hita upp vatnið sem síðan er dælt inn á
dreifikerfið. Í Kyndistöð HS Orku við
Kirkjuveg er vatn hitaveitunnar hitað upp og
hringdælt aftur inn á dreifikerfið. Hraðastýrðar
dælur dæla vatninu út á dreifikerfið sem er tvískipt, það er að
segja efra dreifikerfi og neðra dreifikerfi.
Rafskautaketill:
|
20MW rafskautaketill framleiðir gufu sem leidd er í tvo
10MW varmaskipta sem hita upp vatnið sem síðan er dælt
inn á dreifikerfið.
Vatnið sem notað er til upphitunar er það sama og
neysluvatnið, kemur undan Eyjafjallajökli og er dælt um
sjóleiðslur til Vestmannaeyja.
Raforkan sem notuð er við gufuframleiðsluna er
afgangsorka frá Landsvirkjun.
Samhliða raforkunni er nýttur varmi frá Sorpeyðingastöð
Vestmannaeyja og frá fiskimjölsverksmiðjum í Eyjum þegar
þær eru í gangi. Um 15 % orkunnar fæst með þessu móti.
|
Með því að smella á neðanverðar myndir má sjá þær stærri í nýjum
glugga .
|
|