Language
Trölladyngja Prenta  

Trölladyngju eru hverir og ummyndun samfelldust á skák sem nær austan frá Djúpavatni vestur á Oddafell. Hveravirkin er fremur dauf, tveir hverir upp við Sogin, gufur með smávegis brennisteini og hverasprengigígur neðan undir hálsinum og hitaskellur í Oddafelli.

Sprengigígar og miklir gjallgígar eru á gossprungum þar sem þær liggja yfir ofannefnda A-V-skák. Ummyndun er mest í Sogum þar sem stórt svæði er ummyndað í klessuleir. Vestan í hálsinum frá Sogum suður á móts við Hverinn eina er móbergið einnig ummyndað en hvergi nærri eins og í Sogum. Þar eru stórir sprengigígar frá ísöld, og vatn í sumum. Djúpavatn er myndað á sama hátt. Kalkhrúður finnst á tveim stöðum.

Hitarák með gufuhverum liggur frá Trölladyngju um Eldborg norður í Lambafell, bundin nánast við eina sprungu. Hverinn eini er í hrauni skammt suðvestur af SV-endanum á Oddafelli. Gufuauga með smávegis brennisteini er í hraunbolla og gufur á smásvæði í kring. Þar hjá er dálítil hrúðurbunga (kísill) og kaldar hveraholur í henni. Í Trölladyngju eru tvær borholur, önnur við hverasprunguna norðan undir henni, hin á hverasvæðinu vestan undir hálsinum. Báðar sjá um 260°C hita ofarlega, síðan hitalækkun, en dýpri holan endar í 320°C hita á rúmlega tveggja km dýpi.

Heimildir: Rammaáætlun af vef Orkustofnunar

Sækja um aðgang
Kennitala:
Tölvupóstur:
Sími:

Umsókn um aðgang

Þegar þú hefur skilað inn kennitölu, netfangi og símanúmeri munum við senda til þín bréf í pósti með lykilorði en notendanafnið þitt er kennitalan þín.
Nýtt lykilorð
Kennitala:

Tapað lykilorð

Ef þú hefur glatað lykilorðinu þínu geturðu fengið nýtt sent í tölvupósti með því að slá inn kennitöluna þína og smella á Sækja um nýtt lykilorð.
Mín síða
Kennitala:
Lykilorð:

Innskráning á mína síðu

Hér getur þú skráð þig inn og skoðað yfirlit yfir notkun þína á rafmagni og vatni.