|
|
|
Svartsengis virkjun
Staðsetning orkuversins dregur nafn sitt af áningarstað
hestamanna til forna, en það er svæðið austan núverandi
Grindavíkurvegar gengt orkuverinu. Sjálft orkuverið
stendur á hrauni sem rann árið 1226 sem heitir
Illahraun. Sunnan orkuversins er Þorbjarnarfell og
austan við er Svartsengisfell og Selháls þar á milli og
norðan hans Baðsvellir sunnan orkuversins.
Boranir eftir gufu á Svartsengissvæðinu hófust um miðjan
nóvember 1971og átti að bora um 700 metra holu, við 250
metra dýpi var hiti hennar orðinn um 200°C í fyrsta
áfanga voru boraðar þrjár holur sú dýpsta var um 400
metrar. Þessar holur voru notaðar við
heitavatnsframleiðslu í varmaskiptastöð sem var byggð
árið 1976. Strax við virkjun þessara gufuhola fór
skiljusjórinn að mynda affallslón sem í dag er hið fræga
Bláa Lón. Vatni var hleypt á fyrstu húsin í Grindavík 6.
nóv. 1976 og ári síðar eða 30.desember 1977 á fyrstu
húsin í Njarðvík.
Í dag (2007) er framleiðslugeta orkuversins í Svartsengi
um 75 MW í raforku og um 150 MW í varma.
|
|