|
|
|
HS Orka hf á og rekur tvö orkuver sem framleiða
raforku, hitaveituvatn og jarðsjó með jarðgufu:
Svartengi
hóf raforkuframleiðslu árið 1976 með jarðgufu, og var fyrsta
orkuver landsins til að tvinna saman raforkuframleiðslu og
orkuvinnslu til húshitunar. Virkjunin hefur verið byggð í sex
áföngum og var stærsti áfangi hennar orkuver 5 tekið í notkun
árið 1999 með 30 MW vél ásamt varmaorkuveri með 240 lítrum á
sekúndu heitavatnsframleiðslu. Í desember 2007 var sjötti
áfanginn tekinn í notkun, orkuver 6 þar er eingöngu um
raforkuframleiðslu að ræða, uppsett afl er 33 MW. Uppsett afl
til raforkuframleiðslu allra áfanga er samanlagt um 75 MW. Af
raforkunni sem framleidd er í virkjuninni fara um 27,6 MW til
Norðuráls í Hvalfirði.
Reykjanesvirkjun hóf raforkuframleiðslu inn á
flutningskerfi landsins í maí 2006. Uppsett afl virkjunarinnar í
dag er 100 MW, og er orkan fyrir virkjunina tekin úr 12 borholum
af 15 sem boraðar hafa verið á svæðinu. Jarðgufa hefur verið
nýtt fyrir iðnað og raforkuframleiðslu á Reykjanesi um langt
skeið þannig að nokkuð mikil þekking hefur skapast en gufan sem
tekin er upp er mjög efnarík og veldur miklum útfellingum. Nær
öll framleiðsla virkjunarinnar er seld til Norðuráls í
Hvalfirði.
|
|