Svartsengi
Svartsengi hóf raforkuframleiðslu árið 1976 með jarðgufu, og var fyrsta orkuver landsins
til að tvinna saman raforkuframleiðslu og orkuvinnslu til húshitunar. Virkjunin
hefur verið byggð í sex áföngum og var stærsti áfangi hennar orkuver 5 tekið í
notkun árið 1999 með 30 MW vél ásamt varmaorkuveri með 240 lítrum á sekúndu
heitavatnsframleiðslu. Í desember 2007 var sjötti áfanginn tekinn í notkun, orkuver
6 þar er eingöngu um raforkuframleiðslu að ræða, uppsett afl er 33 MW. Uppsett
afl til raforkuframleiðslu allra áfanga er samanlagt um 75 MW. Af raforkunni sem
framleidd er í virkjuninni fara um 27,6 MW til Norðuráls í Hvalfirði.
Reykjanesvirkjun
Reykjanesvirkjun hóf raforkuframleiðslu inn á flutningskerfi
landsins í maí 2006. Uppsett afl virkjunarinnar í dag er 100 MW, og er orkan
fyrir virkjunina tekin úr 12 borholum af 15 sem boraðar hafa verið á svæðinu.
Jarðgufa hefur verið nýtt fyrir iðnað og raforkuframleiðslu á Reykjanesi um
langt skeið þannig að nokkuð mikil þekking hefur skapast en gufan sem tekin er
upp er mjög efnarík og veldur miklum útfellingum. Nær öll framleiðsla
virkjunarinnar er seld til Norðuráls í Hvalfirði.