Forsíða Raforkusala Framleiðsla HS Orka hf Mín síða
 
 

 

Framleiðsla
Svartsengi
Reykjanes
Vestmannaeyjar
Helguvík
Dreifing
Gufudreifiveita
Jarðsjávarveita
Nýframkvæmdir - rannsóknir
Krýsuvíkursvæði
Trölladyngja
Framleiðsluferli
Rafmagn
Heitt vatn
Borholur
Boranir
Borholur
Annað
Framkvæmdaferli
  Reykjanesvirkjun

Framleiðsla orku frá Reykjanesvirkjun hófst í maí 2006 eftir prufukeyrslu og ýmsar prófanir. Vél 1 fór í rekstur um miðjan maí og vél 2 í lok maí. Orkuverið er hannað með tilliti til þess að því sé almennt stjórnað með fjargæslu frá stjórnstöð í Svartsengi.

Reykjanesvirkjun er eingöngu raforkuver sem samanstendur af 2 x 50 MW tvístreymishverflum með sjókældum eimsvölum sem er nýjung á Íslandi og nota samtals allt að 2 x 2000 l/s, aðskilin dælukerfi (sem er álíka magn og meðalrennsli Elliðaánna).

Þá eru sér kerfi fyrir hverja samstæðu það er forskiljur, rakaskiljur, sjólokar og hljóðdeyfar, gufulokar og gufuháfar, gufuholur og gufuveita, þéttivatnskerfi, sjó- og þéttivatnsfráveita, rafmagns- og stjórnkerfi, þessi kerfi eru öll aðskilin. Síðan er sameiginleg fráveita í lokuðum stokk til sjávar fyrir kælisjó, jarðsjó og þéttivatn en það mannvirki kallast bunustokkur.

Unnin hefur verið hreyfimynd um þær miklu framkvæmdir sem fóru fram á Reykjanesi, með því að smella myndina hér á eftir getur þú skoðað hana.

 


Smellið á myndina hér að neðan til að sjá stærri mynd af framleiðsluferlinu á Reykjanesi.