Framleiðsla orku frá Reykjanesvirkjun hófst í maí 2006 eftir prufukeyrslu og
ýmsar prófanir. Vél 1 fór í rekstur um miðjan maí og vél 2 í lok maí. Orkuverið
er hannað með tilliti til þess að því sé almennt stjórnað með fjargæslu frá
stjórnstöð í Svartsengi.
Reykjanesvirkjun er eingöngu raforkuver sem samanstendur af 2 x 50 MW
tvístreymishverflum með sjókældum eimsvölum sem er nýjung á Íslandi og nota
samtals allt að 2 x 2000 l/s, aðskilin dælukerfi (sem er álíka magn og
meðalrennsli Elliðaánna).
Þá eru sér kerfi fyrir hverja samstæðu það er forskiljur, rakaskiljur, sjólokar
og hljóðdeyfar, gufulokar og gufuháfar, gufuholur og gufuveita, þéttivatnskerfi,
sjó- og þéttivatnsfráveita, rafmagns- og stjórnkerfi, þessi kerfi eru öll
aðskilin. Síðan er sameiginleg fráveita í lokuðum stokk til sjávar fyrir
kælisjó, jarðsjó og þéttivatn en það mannvirki kallast bunustokkur.
Unnið var myndband um þær miklu framkvæmdir sem fóru fram á Reykjanesi og hana
er hægt að sjá það hér undir nafninu Virkjun.
Mynd af framleiðsluferlinu á Reykjanesi