|
|
|
Helguvík
Kalka brennir sorpi í sérstökum háhitaofnum, við yfir 1000 °C
hita. Árið
2003 voru teknar í gildi reglugerðir um meðhöndlun úrgangs
(55/2003) og brennslu úrgangs ( 739/2003) sem byggðar voru á
Evróputilskipunum. Í þeim er sagt að lausnir í úrgangsmálum
skulu taka mið af umhverfislegum og efnahagslegum forsendum og
skal nota til þess bestu fáanlegu tækni. Tæknilega lausnir skulu
taka mið af eftirfarandi forgangsröðun að svo miklu leyti sem
slíkt er mögulegt:
1. Að dregið verði úr myndun úrgangs.
2. Endurnotkun.
3. Endurnýting.
4. Endanleg förgun
Skilgreining á Endurnýtingu (recovery) er : hvers konar
nýting úrgangs, önnur en endurnotkun þar með talin endurvinnsla,
orkuvinnsla og landmótun.
Þannig að þegar rafalinn og ketilinn voru sett upp í Kölku þá
varð orkuvinnslan sjálfkrafa “græn leið”samkvæmt reglugerðunum.
Þetta eykur endurvinnslu/endurnýtingarhlutfall stöðvarinnar mjög
mikið en stór hluti úrgangs sem kemur í stöðina fer þegar til
endurvinnslu svo sem timbur og málmar.
Reykgösin eru hreinsuð áður en þau fara út í
andrúmsloftið. Til þess að hreinsun geti farið fram þarf að kæla
reykgösin niður í rúmlega 250 C, og er það gert í sérstökum
reykgaskatli. Þessi ketill framleiðir gufu við 12 bar.
Varmamyndun í katlinum nemur um fjórum MW þegar brennslan er
rekin á fullum afköstum.
Í stað þess að losa þennan varma alfarið út í andrúmsloftið, er
hluti hans nýttur í innanhússhitaveitu í brennslustöðinni, til
að hita húsnæði og í snjóbræðslu á plönum umhverfis stöðina.
Einnig er gufan nýtt til rafmagnsframleiðslu út á dreifikerfi
HS, með ríflega 400 kW gufuhverfli sem er í eigu HS Orku, en Kalka
sér um daglegan rekstur hans.
Brennslustöðin er sjálfri sér nóg um raforku og varma og gott
betur, því hún er einnig aflögufær um hitaveitu, 2,5 til 3 MW að
jafnaði. Sem stendur eru því miður ekki not fyrir frekari
hitaveitu í næsta nágreni Kölku og á meðan það ástand varir er
varmanum komið í lóg í sérstökum loftblásturskæli
|
|