Language
Verklag við borframkvæmdir Prenta  

Samstarf Jarðborana hf og HS Orku hf

Á undanförnum árum hafa Jarðboranir og HS Orka unnið sameiginlega að endurbættu verklagi í borverkum, með það að leiðarljósi að gera borframkvæmdir hagkvæmari. Miklar breytingar hafa orðið á framkvæmdum, er einkum hafa miðað að því að nú eru nær allir verkþættir borverksins undir stjórn og á ábyrgð verktakans. Það er vissulega mikil breyting orðin á verklagi og samskiptum Jarðborana og HS Orku frá því sem áður var, þegar öll verk voru unnin á daggjöldum og til þess verklags, sem nú er unnið eftir, þegar allt borverkið er unnið á föstu einingaverði. Með þessari nýju tilhögun, sem sífellt er verið að bæta, sjáum, við gjörbreytt vinnuumhverfi.

Stöðugt er unnið að aukinni upplýsingagjöf varðandi gang borverksins. Við borun holu RN-12 var innleitt nýtt upplýsingakerfi, sem gerir það að verkum að verkkaupi getur nú fylgst nákvæmlega með gangi borverksins á tölvuskjá á skrifstofu. Skráningarkerfið, sem er í eigu Jarðborana, var hannað í samvinnu við Verkfræðistofuna Vista, er tengt viðkomandi verkkaupa. Skráningin fer fram í tölvu, sem er komið fyrir í stjórnhúsi borsins. Við hana eru tölvur nettengdar með þráðlausu netkerfi. Kerfið er mjög stöðugt og öflugt með þægilegu viðmóti þar sem fram kemur allt sem nauðsynlegt er að fylgjast með, á einni skjámynd, auk þess sem kerfið er afar auðvelt í notkun. Með innleiðingu á þessu nýja upplýsingakerfi sýna Jarðboranir hf. vilja til veita góða þjónustu og vera í fremstu röð.

Fullyrða má, að engir verkkaupar séu jafn kröfuharðir en jafnframt reiðubúnir að tileinka sér nýjungar og beitingu nýrrar bortækni, ef sýnt er að það leiði til lækkunar á borkostnaði og hagkvæmari framkvæmdar, en stjórnendur HS Orku. Þannig hefur það verið á undangengnum árum að jafnskjótt og einu verki er lokið er farið að skoða hvort ekki megi beita betri tækni, bæta verklag, minnka plön eða bæta umgengni og setja enn strangari kröfur er varða umhverfismál. Þessi vinna, sem miðast við að auka hagkvæmni og bæta árangur, er unnin sameiginlega í fyrirtækjunum, þar sem sérfræðingar þeirra leggja fram hugmyndir og tillögur, og út frá þeim er unnið að bættu verklagi borverksins. Það er öllum ljóst sem vinna með stjórnendum og öðrum starfsmönnum HS Orku að orðið stöðnun er bannorð hjá því fyrirtæki og það er beinlínis óheimilt að ganga að því sem vísu að gera hlutina í dag nákvæmlega eins og þeir voru framkvæmdir í gær.

Fyrir fyrirtæki eins og Jarðboranir hf., sem byggir afkomu sína á framsækinni sérþekkingu og áratuga reynslu, er lærdómsríkt að starfa með framsæknu fyrirtæki eins og HS Orku þar sem hvatning og gagnrýni eru sett fram með jákvæðum hætti og þar sem leitast er við að rýna í verklag til að bæta það. Þessi markvissa samvinna fyrirtækjanna og vilji til að þróa árangursríkt verklag hefur leitt af sér lækkun borkostnaðar og aukið öryggi við borframkvæmdir.

Bent Einarsson,
forstjóri Jarðborana hf

Sækja um aðgang
Kennitala:
Tölvupóstur:
Sími:

Umsókn um aðgang

Þegar þú hefur skilað inn kennitölu, netfangi og símanúmeri munum við senda til þín bréf í pósti með lykilorði en notendanafnið þitt er kennitalan þín.
Nýtt lykilorð
Kennitala:

Tapað lykilorð

Ef þú hefur glatað lykilorðinu þínu geturðu fengið nýtt sent í tölvupósti með því að slá inn kennitöluna þína og smella á Sækja um nýtt lykilorð.
Mín síða
Kennitala:
Lykilorð:

Innskráning á mína síðu

Hér getur þú skráð þig inn og skoðað yfirlit yfir notkun þína á rafmagni og vatni.