Language
Borholur Prenta  

Borholur Svartsengi

Boranir fyrir jarðhitaleit í Svartsengi hófust undir lok árs 1971. Hola 1 varð 262 m djúp, en hiti í holunni reyndist vera kringum 37°C og var vatn úr henni því notað sem skolvatn fyrir borun næstu holna. Holan er staðsett þar nærri sem tilraunaverksmiðja CRI rís. Næstu tvær holur voru boraðar í byrjun árs 1972 á því svæði sem mátt hefur síðustu ár sjá gufu stíga upp af. Dýpri holan varð 402 m djúp og náði því rétt niður í hið eiginlega jarðhitakerfi í Svartsengi. Hiti í holunni varð yfir 215 °C og aðeins lægri í grynnri holunni. Þessar holur staðfestu tilvist jarðhitakerfisins í Svartsengi og háan hita þess. Aðrar tvær holur voru boraðar tveim árum síðar djúpt í jarðhitakerfið (1713 m) og höfðu því alls 5 holur verið boraðar þegar Hitaveita Suðurnesja hóf vinnslu á svæðinu seinni hluta árs 1976. Næstu 6 árin bættust við 6 borholur og aðeins byrjað á 13. holunni en hún var aldrei kláruð. Á sama tíma jókst framleiðsla á heitu vatni, byrjað var að framleiða rafmagn og hætta varð notkun á eldri holum vegna skemmda á fóðringum. Hlé varð á borunum til 1993 er næstu tvær holur bættust við. Skömmu fyrir og kringum síðustu aldamót voru svo boraðar 6 holur samfara stækkun orkuversins fyrir aukna rafmagnsframleiðslu (30 MWe). Á sama tíma var náð tökum á niðurdælingu sem jókst næstu árin. Fyrir frekari aukningu á rafmagnsframleiðslu voru boraðar 3 holur árið 2008 og höfðu þá verið boraðar alls 24 holur í Svartsengi.


Borholur Svartsengi.


Borholur Reykjanesi


Aðrar borholur



Sækja um aðgang
Kennitala:
Tölvupóstur:
Sími:

Umsókn um aðgang

Þegar þú hefur skilað inn kennitölu, netfangi og símanúmeri munum við senda til þín bréf í pósti með lykilorði en notendanafnið þitt er kennitalan þín.
Nýtt lykilorð
Kennitala:

Tapað lykilorð

Ef þú hefur glatað lykilorðinu þínu geturðu fengið nýtt sent í tölvupósti með því að slá inn kennitöluna þína og smella á Sækja um nýtt lykilorð.
Mín síða
Kennitala:
Lykilorð:

Innskráning á mína síðu

Hér getur þú skráð þig inn og skoðað yfirlit yfir notkun þína á rafmagni og vatni.