|
Sýningin - Orkuverið Jörð

Gagnvirk sýning í Reykjanesvirkjun.
Á árinu 2006 skrifaði Hitaveita Suðurnesja hf. undir
samninga við List og saga ehf. og Janvs international
vegna hönnunar og smíði á sýningunni Orkuverið Jörð eða
Powerplant Earth.
Sýningin hefur nú verið sett upp í stöðvarhúsi
Reykjanesvirkjunar.
Hönnun og hugmyndafræði sýningarinnar gengur út
frá stóra hvelli og upphafi sólkerfisins allt aftur til
okkar tíma.
Farið er meðal annars
í gegnum uppfinningar sem breytt hafa lífi okkar
til þess vegar sem það er í dag en það ætti að vera
okkur öllum ljóst hversu mikilvægur þáttur orkan er í
lífi okkar.
Fjallað verður um mismunandi orkunýtingu á jörðinni og
hvaða möguleika við höfum á orkunýtingu bæði hér heima á
Íslandi sem og annars staðar í heiminum.
Nokkur sýnishorn eru á staðnum en segja má að
jarðvarmavirkjunin sjálf sé eitt það stærsta.
Sýningin er að nokkrum hluta gagnvirk og geta
gestir því tekið virkan þátt í henni.
Nánar
um efnistök Orkuversins Jörð.
Upphaflega
er Orkuverið Jörð hugarfóstur aðstoðarforstjóra
Hitaveitu Suðurnesja hf, Alberts Albertssonar.
Sýningin hefur síðan verið hönnuð af Janvs International
í London og Ara Trausta Guðmundssyni sem sá um að semja
texta sýningarinnar.
Á
spjöldum og gagnvirkum skjám er að finna ógrynni
upplýsinga um orku, plánetur og himingeiminn.
Nokkur gagnvirk tæki er að finna á sýningunni þar
á meðal jarðskjálftahermir þar sem sýningargestir geta
upplifað raunverulega jarðskjálfta á mismunandi
richterskala.
Plánetu ratleikur um Reykjanesið.Fyrir
utan stöðvarhús virkjunarinnar, hálfgrafin í hrauninu er
sólin staðsett en hinar plánetur sólkerfisins eru
staðsettar víðsvegar um Reykjanesskagann í hlutfallslega
réttri fjarlægð frá sólinni við Reykjanesvirkjun og
hlutfallslega réttri stærð við hana alla leið til
Reykjanesbæjar þar sem síðasta og minnsta plánetan er.
Þar af leiðandi er upplagt að fara í skemmtilegan
ratleik um skagann í tengslum við plánetur
sýningarinnar.
Frá og með 7 september 2009 til 15 maí 2010 verður
sýningunni lokað.
Eingöngu verður
tekið á móti hópum samkvæmt samkomulagi.
Vinsamlega
hafið samband í síma 436 1000

Veist Þú –
-
hversu mikil orka fer í að hita vatn í tebolla?
-
Hversu margar pláneturnar eru í sólkerfinu okkar?
-
Hvað þær heita og hvernig ætli sé að vera þar?
-
Hversu mikla orku þurftir þú til að ferðast til
orkuversins?
Allt eru þetta spurningar sem þú færð svarað á
sýningunni og mörgum fleiri sem þér datt ekki einu sinni
í hug að spyrja.
|