|
|
|
Völundur og Jarðlind
HS Orka hf
kynnir Völund og Jarðlind sem eru nýir starfskraftar hjá HS Orku hf.
Þeirra starf hjá fyrirtækinu verður að kynna fyrir yngri
kynslóðinni starfssemi HS Orku hf en starf þeirra er í sífelldri þróun
svo búast má við mun meiri fróðleik inn á vefsíður þeirra hjá
okkur á næstu mánuðum.
Völundur og Jarðlind eru jarðálfar sem komust upp á yfirborðið
úti á Reykjanesi þar sem HS Orka hf hefur borað
nokkrar holur í tengslum við Reykjanesvirkjun. Þau settust að í
virkjuninni og fyrir unga sem aldna er fróðlegt að heimsækja
virkjunina og skoða sýninguna Orkuverið Jörð.
Á síðum Völundar og Jarðlindar er hægt að skoða fróðlegt efni um
orku og rafmagn ásamt því að hægt er að prenta út nokkrar
litamyndir og þrautir en lausnir þeirra tengjast rekstri
HS Orku hf á einn eða annan hátt.
Völundur og Jarðlind. Velkomin til starfa hjá HS Orku hf

|
|