Language
Samkeppni á raforkumarkaði Prenta  

Frá því að raforkulögum var breytt á Íslandi árið 2005, hafa Íslendingar átt kost á því að velja sér það raforkufyrirtæki sem þeir versla við. Samkeppni hefur með þessu móti komist á milli söluaðila og á milli framleiðenda raforkunnar en flutningur og dreifing er háð einkaleyfi stjórnvalda.

Hjá HS Orku er viðskiptavinurinn alltaf í fyrsta sæti. Fyrirtækið hefur sett sér að vera best rekna orkufyrirtæki landsins og tryggja þannig viðskiptavinum sínum lægsta orkuverð sem býðst. Þetta er lítið og framsækið fyrirtæki sem leggur ríka áherslu á að þjónusta við viðskiptavini sé persónuleg; að náttúruauðlyndir séu nýttar með skynsamlegum hætti og að afhent orka sé í samræmi við allar skilgreindar gæðakröfur.

HS Orka kappkostar að vera í fremstu röð hvað varðar starfshætti og tækniþekkingu og reynir að laga þjónustu og framleiðslu sína að óskum viðskiptavina. Allir reikningar HS Orku eru aðgengilegir á netinu, sem auðveldar utanumhald og sparar tíma og fyrirhöfn.

Viðskiptavinir HS Orku geta séð nákvæmlega á raforkureikning sínum hversu mikið greitt er fyrir flutning, dreifingu og raforkuna sjálfa. Þar er einnig að finna allar upplýsingar sem þarf til þess að söluaðilaskipti geti farið fram. Hafir þú ekki aðgang að þessum upplýsingum geta starfsmenn okkar liðsinnt þér, að því gefnu að mælisnúmer og notkunarstaður liggi fyrir.

Ef þú ert ekki viðskiptavinur HS nú þegar, veldu þá annað hvort Raforkusala til heimila, Raforkusala til fyrirtækja eða Fyrirspurn vegna raforkusölu hér til hliðar og við munum aðstoða þig eftir bestu getu.

Þjónustufulltrúar okkar veita allar frekari upplýsingar í síma 422-5200

Sækja um aðgang
Kennitala:
Tölvupóstur:
Sími:

Umsókn um aðgang

Þegar þú hefur skilað inn kennitölu, netfangi og símanúmeri munum við senda til þín bréf í pósti með lykilorði en notendanafnið þitt er kennitalan þín.
Nýtt lykilorð
Kennitala:

Tapað lykilorð

Ef þú hefur glatað lykilorðinu þínu geturðu fengið nýtt sent í tölvupósti með því að slá inn kennitöluna þína og smella á Sækja um nýtt lykilorð.
Mín síða
Kennitala:
Lykilorð:

Innskráning á mína síðu

Hér getur þú skráð þig inn og skoðað yfirlit yfir notkun þína á rafmagni og vatni.