Breyting á raforkuumhverfi árið 2006
Eftir breytingar sem gerðar voru á raforkulögum geta allir valið sér þann
raforkusala sem þeir telja hagkvæmast og best að skipta við. Geri menn ekkert
kaupa þeir raforkuna frá núverandi raforkusala, en geta hins vegar fært
viðskiptin hvenær sem er til annars raforkusala.
Raforkuumhverfið fyrir breytingu
Raforkukaupendur þurftu áður að kaupa rafmagn af því orkufyrirtæki sem átti
dreifikerfið þar sem þeir bjuggu. Notandi á dreifisvæði HS Veitna keypti þess
vegna rafmagn af HS Orku og notandi sem bjó í Reykjavík varð að kaupa raforkuna
hjá Orkuveitu Reykjavíkur, svo dæmi sé tekið.Til áramóta 2004-2005 voru
rafmagnsreikningar ekki sundurliðaðir. Innheimt var í einu lagi gjöld fyrir
framleiðslu rafmagns, flutning, dreifingu og sölu. Og var því eingöngu ein
sölulína á reikningi fyrir þessum kostnaðarþáttum.
Verðmyndun raforkuverðsins fyrir breytingu:
Raforkuumhverfið eftir breytingu
Til að koma á samkeppni í raforkusölu þurftu raforkufyrirtæki að skilja í
sundur starfsemi dreifingar annars vegar og vinnslu og sölu hins vegar. Dreifing
raforku verður áfram háð einkaleyfi og er undir eftirliti Orkustofnunar.
Eftir breytingu getur til dæmis notandi sem er búsettur á dreifiveitusvæði
Norðurorku keypt raforku af HS Orku hf.
Samt sem áður mun dreifiveitan (Norðurorka) innheimta gjöld fyrir dreifingu
og flutning orkunnar eftir sem áður.Eftir breytingu munu notendur, sem skipta um
raforkusala, fá senda tvo rafmagnsreikninga í stað eins, annan fyrir dreifingu
raforkunnar en hinn fyrir sjálfa notkunina.
Verðmyndun heildarverðs raforkunnar eftir breytingu:
Efni fengið að hluta til af vef Orkustofnunar,
www.os.is