|
|
|
Samkeppni á raforkumarkaði
Frá því að raforkulögum var breytt á Íslandi árið 2005, hafa
Íslendingar átt kost á því að velja sér það raforkufyrirtæki sem
þeir versla við. Samkeppni hefur með þessu móti komist á milli
söluaðila og á milli
framleiðenda raforkunnar en flutningur og dreifing er háð
einkaleyfi stjórnvalda.
Hjá HS Orku er viðskiptavinurinn alltaf í fyrsta
sæti. Fyrirtækið hefur sett sér að vera best rekna orkufyrirtæki
landsins og tryggja þannig viðskiptavinum sínum lægsta orkuverð
sem býðst. Þetta er lítið og framsækið fyrirtæki sem leggur ríka
áherslu á að þjónusta við viðskiptavini sé persónuleg; að
náttúruauðlyndir séu nýttar með skynsamlegum hætti og að afhent
orka sé í samræmi við allar skilgreindar gæðakröfur.
HS Orka kappkostar að vera í fremstu röð hvað varðar
starfshætti og tækniþekkingu og reynir að laga þjónustu og
framleiðslu sína að óskum viðskiptavina. Allir reikningar
HS Orku eru aðgengilegir á netinu, sem auðveldar
utanumhald og sparar tíma og fyrirhöfn.
Viðskiptavinir HS Orku geta séð nákvæmlega á
raforkureikning sínum hversu mikið greitt er fyrir flutning,
dreifingu og raforkuna sjálfa. Þar er einnig að finna allar
upplýsingar sem þarf til þess að söluaðilaskipti geti farið fram.
Hafir þú ekki aðgang að þessum upplýsingum geta starfsmenn okkar
liðsinnt þér, að því gefnu að mælisnúmer og notkunarstaður liggi
fyrir.
Ef þú ert ekki viðskiptavinur HS nú þegar,
veldu þá annað hvort Raforkusala til heimila,
Raforkusala til fyrirtækja
eða
Fyrirspurn vegna raforkusölu hér til hliðar og við
munum aðstoða þig eftir bestu getu.
Þjónustufulltrúar okkar veita allar frekari upplýsingar í síma
422-5200.
|
|