Öll nýting á jarðhita hjá orkuverum Hitaveitu Suðurnesja er svokölluð
háhitanýting það er að segja að úr borholum kemur blanda jarðsjávar og gufu
undir miklum þrýstingi. Toppþrýstingur á vinnsluholum er á bilinu frá 15 til 40
bar og er hann minnkaður í um það bil 5 bar áður en jarðhitavökvinn er settur í
gegnum skilju þar sem hrein gufa er skilin frá jarðsjónum. Í orkuverinu á
Reykjanesi er skiljuþrýstingur 10 bar en að öðru leyti sami ferill. Eftir að
hrein gufa hefur náðst úr hinum
saltasjó er hún nothæf í hverskonar upphitun eða til að
knýja tæki beint eins og til dæmis gufuhverfla.
Það má segja að hugmyndaflugið sé eina takmörkunin á þeim möguleikum sem nýting
jarðgufu býður uppá. Til dæmis er fiskur þurrkaður með jarðgufu á Reykjanesi og
Blá Lónið nýtir gufu til að eima jarðsjó við framleiðslu á snyrtivörum.