Language
Jarðsjávarveita Prenta  

HS Orka hf rekur orkuver í Svartsengi þar sem jarðsjór úr allt að 2000 metra djúpum borholum er settur í gegnum ferli til framleiðslu á heitu vatni og rafmagni. Jarðvökvann er ekki hægt að nota til beinnar upphitunar vegna seltu og mikils steinefnainnihalds. Jarðvökvinn er því notaður til upphitunar á ferskvatni og framleiðslu á rafmagni. Jarðvökva sem ekki er nýttur til beinnar upphitunar er dælt niður í jarðhitageyminn auk þess sem hann ásamt þéttiefni jarðgufu myndar Bláa lónið. Einstakt lífríki ásamt miklu magni af náttúrulegum steinefnum, kísil og sérstökum blágrænþörungi mynda mjúkan hvítan leirinn í lóninu og gefa því sinn sérstaka bláa lit.

Bláa lónið

Bláa Lónið hf. rekur baðstaðinn við Bláa lónið, göngudeild fyrir psoriasis sjúklinga og framleiðir húðverndarvörur undir merkinu Blue Lagoon. Nýr og glæsilegur baðstaður opnaði við Bláa lónið í júlí 1999. Baðstaðurinn hýsir fullkomna búnings og baðaðstöðu sem rúmar 900 gesti; 5000 fermetra. innilaug fyllt jarðsjó; veitingaaðstöðu auk funda og ráðstefnu aðstöðu. Baðlónið sjálft er 5000 fermetrar, gestum gefst einnig kostur á að slaka á í helli hálffylltum af jarðsjó og í helli sem er jafnframt jarðgufubað.

Göngudeildin og lækningamáttur

Fyrir tilviljun uppgötvaðist að böðun í lóninu hafði jákvæð áhrif á húðsjúkdóminn psoriasis. Í kjölfarið var hafist handa við að rannsaka lækningamátt lónsins. Niðurstöður rannsókna sýna að böðun í lóninu hefur mjög góð áhrif á ýmsa húðkvilla, einkum psoriasis. Á göngudeildinni við Bláa lónið er boðið upp á náttúrulega meðferð við psoriasis sem hægt er að sníða að þörfum og aðstæðum hvers einstaklings. Mat og beiðni frá húðsjúkdómalækni er nauðsynleg áður en meðferð hefst.

Blue Lagoon húðverndarvörurnar

Vörurnar eru náttúrulegar og byggðar á einstökum virkum náttúrulegum hráefnum frá heilsulindinni Bláa Lóninu; söltum, kísil og þörungi ásamt öðrum sérstaklega völdum náttúrulegum efnum.

Sækja um aðgang
Kennitala:
Tölvupóstur:
Sími:

Umsókn um aðgang

Þegar þú hefur skilað inn kennitölu, netfangi og símanúmeri munum við senda til þín bréf í pósti með lykilorði en notendanafnið þitt er kennitalan þín.
Nýtt lykilorð
Kennitala:

Tapað lykilorð

Ef þú hefur glatað lykilorðinu þínu geturðu fengið nýtt sent í tölvupósti með því að slá inn kennitöluna þína og smella á Sækja um nýtt lykilorð.
Mín síða
Kennitala:
Lykilorð:

Innskráning á mína síðu

Hér getur þú skráð þig inn og skoðað yfirlit yfir notkun þína á rafmagni og vatni.