|
|
| |
Starfsmannastefna HS Orku hf
Markmið HS Orku hf er að tryggja að
vinnustaðurinn einkennist af fagþekkingu, verkkunnátta,
þjónustulund, starfsgleði, heiðarleika og gagnkvæmri
virðingu. Möguleikar til að ná fram settum markmiðum
byggjast fyrst og fremst á því að fyrirtækið hafi yfir
að ráða hæfu, áhugasömu og vel menntuðu starfsfólki, sem
getur axlað ábyrgð og sýnt frumkvæði í starfi, brugðist
við síbreytilegum þörfum og geti þannig tekið virkan
þátt í framþróun fyrirtækisins. Einnig að fyrirtækið
leggi metnað sinn í að hlúa vel að sínu starfsfólki til
að viðhalda starfsánægju og góðum starfanda.
1. Hlutverk starfsmanna og stjórnenda
Er að veita bestu þjónustu hverju sinni og vera
reiðubúið að takast á við dagleg, ný og breytt verkefni.
Stjórnendum ber að tileinka sér góða og nútímalega
stjórnunarhætti, sem meðal annars felast í að laða fram
og efla frumkvæði, kennsluhæfileika, almennan félags- og
persónuþroska starfsmanna. Þeir skulu jafnan leitast við
að hafa samráð við starfsfólk sitt um málefni er það
varðar og beita sér fyrir sem víðtækastri sátt um þau
ásamt því að viðhalda virku upplýsingastreymi.
2. Jafnréttismál
Sjá jafnréttisáætlun
HS Orku hf
3. Starfsþróun og símenntun
HS Orka hf hyggst fylgja eftir starfsþróun starfsmanna að því
marki sem hún getur orðið bæði starfsmanninum og
fyrirtækinu til gagns. Starfsþróun er ekki einhliða
aðgerð starfsmanns eða stjórnanda. Hún er á ábyrgð
beggja og er hluti af þátttöku starfsmanns í
starfsmannasamtölum, símenntun, tilflutningi í starfi,
breytingu á starfi og samvinnu. HS Orka hf gefur starfsmönnum
kost á símenntun innan sem utan stofnunarinnar til að
auka þekkingu sína og faglega hæfni sem nýtist í starfi.
4. Starfsmannasamtöl/viðtöl
HS Orka hf stefnir á að komið verði á reglulegum
starfsmannasamtölum/viðtölum. Hagsmunir starfsmanna og
fyrirtækisins mætast í uppbyggjandi samtölum þar sem
gagnkvæmar kröfur og væntingar koma fram hjá hvorum
tveggja.
5. Starfið og fjölskyldan
HS Orka hf leitast við að skapa starfsmönnum sínum aðstæður til
að samræma kröfur starfs- og fjölskylduábyrgðar eins og
kostur er. Starfsmönnum skal einnig gert kleift að
minnka við sig vinnu tímabundið vegna fjölskylduábyrgðar
eins og til dæmis umönnunar barna og sjúkra
fjölskyldumeðlima eftir því sem aðstæður leyfa hverju
sinni. Ennfremur skal þess gætt að yfirvinnu sé haldið
innan hóflegra marka.
6. Ráðning og starfslok
HS Orka hf leitast ávallt við að ráða sem hæfustu starfsmenn til
starfa. Allir umsækjendur hafa jafnan rétt til vinnu og
ráðningar byggjast á hæfileikum, menntun og reynslu þess
sem ráðinn er og hæfni viðkomandi til að inna starfið
vel af hendi. Við ráðningar skal ávallt hafa hliðsjón af
gildandi jafnréttisáætlun. Gengið skal frá ráðningum með
ráðningasamningi. HS veitir nýjum starfsmönnum sem koma
til starfa, grunnþekkingu og fræðslu um helstu þætti
fyrirtækisins og starfsfræðslu eftir því sem við á
hverju sinni. Starfsreglur HS Orku hf kveða á um að starfsmenn
láti af störfum eigi síðar en í lok þess mánaðar sem
þeir verða 70 ára. Þegar starfsmenn láta af störfum,
hvort sem er vegna aldurs eða annarra orsaka, skal þeim
standa til boða viðtal við starfsmannastjóra eða/og
yfirmann meðal annars um líðan í starfi, ástæður
starfsloka og fleira.
7. Öryggismál og vinnuvernd
HS Orka hf leggur metnað sinn í að öryggismál séu í hávegum höfð
og er starfandi virk öryggisnefnd innan fyrirtækisins.
8. Starfskjör
HS Orka hf tekur tillit til ábyrgðar, frammistöðu og árangurs
við ákvörðun kjara, til þess að geta laðað að og haldið
sem hæfustu starfsfólki.
9. Viðvera og vinnutími
Starfsmönnum er ætlað að sinna skyldum sínum á umsömdum
vinnutíma og mæta stundvíslega til starfa.
10. Samskipti og siðareglur
Starfsmenn sýni samstarfsmönnum sínum og öðrum
tilhlýðilega virðingu, umburðarlyndi og jákvætt viðmót
sem viðheldur og endurspeglar góðan starfsanda. Ummæli,
tjáning eða atferli starfsmanns gagnvart öðrum sem ógnar,
truflar eða ögrar og veldur óþægindum verður ekki liðið.
Starfsmenn skulu gæta fyllsta trúnaðar um þau málefni
sem þeir verða áskynja í starfi sínu varðandi starfsemi
HS Orku hf og viðskiptavini.
11. Heilbrigði
HS Orka hf hvetur og styrkir starfsfólk sitt fjárhagslega til að
leggja rækt við eigin heilsu og ástunda heilbrigt
líferni. HS Orka hf veitir starfsmönnum leiðbeiningar og aðstoð
til að vinna úr vandamálum svo sem misnotkun vímuefna.
Vinnustaðir HS Orku hf eru reyklausir.
|
|
|