Stefna
Stefna HS Orku hf er að gætt skuli fyllsta jafnréttis milli kvenna og karla og að hver starfsmaður verði metinn á eigin forsendum óháð aldri, kyni, kynhneigð, þjóðerni, litarháttar, trú eða stjórnmálaskoðunum. Þetta á meðal annars við um rétt til starfa, aðstöðu, menntunar og kjara fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf.
Markmið
Markmið HS Orku hf er að stuðla að jafnri stöðu kynjanna innan fyrirtækisins og einstaklingurinn fái að njóta sín í þeim aðgerðum sem áætlunin felur í sér.
Ábyrgð
Ábyrgð á framgangi jafnréttismála er hjá starfsmannastjóra sem sér til þess að jafnréttisáætlun sé framfylgt og viðhaldið og leggja mat á hvort markmiðum hennar sé náð. Ef starfsmaður telur á sér brotið þá mun starfsmannastjóri tryggja viðeigandi aðstoð.
Endurskoðun og kynning
Umsjón með endurskoðun og kynningu skal vera í höndum starfsmannastjóra og skal hún endurskoðast á tveggja ára fresti. Jafnréttisáætlun skal kynnt stjórn og starfsmönnum fyrirtækisins.
Aðgerðir
- Gæta skal jafnréttis við ráðningar og tilfærslur í starfi. (jafna stöðu kynja). Í auglýsingum um laus störf skulu bæði kynin hvött til að sækja um starfið.
- Leitast skal við að jafna hlutfall kvenna og karla í hinum ýmsu störfum innan fyrirtækisins. (ekki flokka í kvenna og karlastörf).
- Við launaákvarðanir skal greiða jöfn laun og sömu kjör fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf og taka tillit til umfangs og ábyrgðar starfs , menntun og reynslu (úrbætur að uppræta launamun). Konur og karlar skulu eiga jafnan aðgang að starfsmenntun og þjálfun og skulu liggja fyrir upplýsingar um skráningu á námskeið hjá fyrirtækinu. (sömu möguleikar á þjálfun).
- Við stofnun vinnuhópa skal taka mið af verkefninu og hafa þekkingu starfsmanna að leiðarljósi. Í formlegum vinnuhópum skal útbúa erindisbréf verkefnisins þar sem hópmeðlimir eru tilgreindir (nefndir og ráð).
- Leitast skal við að skapa starfsmönnum aðstæður til að samræma atvinnu- og fjölskyldulíf með því til dæmis að auðvelda starfsmönnum endurkomu eftir veikindi eða fæðingarorlof með því að bjóða uppá hlutastörf þar sem því verður við komið (samræming).
- Boðið verður uppá fræðslu um einelti og kynferðislega áreitni, slík hegðun er ekki liðin.