Breytingar urðu á eignarhaldi á fyrirtækinu þegar Geysir Green Energy seldi
Magma Energy A.B Sweeden allan hlut sinn í fyrirtækinu. Magma Energy á eftir
breytinguna 98,526% í HS Orku hf.
Umræður voru miklar um fyrirtækið í fjölmiðlum og víðar þar sem þess var krafist
að salan og jafnvel uppskipting fyrirtækisins yrði látin ganga til baka.
Undirskriftasöfnun fór af stað á netinu þar sem þess var krafist að auðlindir
yrðu í opinberri eigu. Rétt er að taka fram að þær auðlindir sem fyrirtækið
vinnur jarðvarma úr eru nú þegar í opinberri eigu. Þá var einnig umræða um að
vinnslugeta svæðisins á Reykjanesi væri ofmetinn og var því svarað af
jarðfræðingum fyrirtækisins og fleirum.
Fjárfestingar á árinu voru alls 2,9 milljarðar.
Raforkuframleiðsla frá orkuverunum var alls 1.349,4 GWst. Heitavatnsframleiðsla
var alls 11,5 milljónir tonn. Heildarvinnsla úr jarðhitasvæðinu í Svartsengi var
6,824 milljón tonn eða 3,9% minni en árið 2009. Niðurdæling var alls 5,465
milljón tonn eða 16,3% minni en árið 2009. Á Reykjanesi var vinnslan úr
jarðhitasvæðinu alls 18,415 milljón tonn eða 0,5% minna en árið 2009.
Niðurdæling var 2,194 milljón tonn eða 234% meiri en árið áður.
Ný túrbína ásamt eimsvala vegna fyrirhugaðrar stækkunar Reykjanesvirkjunar kom
til landsins í upphafi sumars. Virkjanaleyfi fyrir stækkuninni hafði enn ekki
fengist og sóttu fulltrúar fyrirtækisins fjölmarga fundi með fulltrúum
Orkustofnunar vegna málsins.
23. febrúar var Íslenska Ánægjuvogin afhent fyrirtækinu en þetta var áttunda
árið í röð sem fyrirtækið er hlutskarpast í þessari mælingu á ánægju
viðskiptavina sem Samtök Iðnaðarins, Stjórnvísi og Capacent Gallup standa að.
8. apríl var undirritaður samningur við gagnaverið Thor Data Center um orkukaup.
Gagnaverið er staðsett í Hafnarfirði.
Þann 17. maí var undirritaður samningur við Grindavíkurbæ um sölu á landi og
jarðhitaauðlind í Svartsengi. Einnig var gerður samningur um endurleigu lands og
réttinda í 65 ár í samræmi við lög sem um þetta gilda. Grindavíkurbær gekk með
þessu inn í samning sem gerður var árið áður við Reykjanesbæ.
23. júní var aðgengi formlega opnað aftur að Gunnuhver á Reykjanesi en það hafði
verið lokað fyrir fólki í um 2 ár vegna virkni í hvernum. Fyrirtækið tók þátt í
að laga aðgengi að hvernum með gerð bílastæða, lagningu göngustíga og
timburpalla.
Í júlí var gerð tilraun til örfunar holu 29 á Reykjanesi þegar
eldflaugaeldsneyti var látíð síga niður í holun í sérstökum hylkjum og það
sprengt. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt tækni er notuð hér á landi.
4. ágúst kom upp bilun í holu 24 Svartsengi (niðurdælingarhola) þegar vél 12 í
Svartsengi sló út. Þegar vökvi hætti að renna ofan í holuna tók hún að blása af
miklum krafti, kraftarnir voru svo miklir að holuloki og annar búnaður gengu upp
um rúman metra.
Alls komu um rétt tæplega 5.800 manns í heimsókn til fyrirtækisins, fengu
fræðslu um orkuvinnsluna og af hverju hægt er að vinna jarðhita á
Reykjanesskaganum.
Fjöldi starfsmanna í árslok var 133 í 131 stöðugildi. Stór hluti þessara
starfsmanna sinnir nær eingöngu þjónustu við HS Veitur hf.