HS Orka hf var stofnuð 1. desember 2008 þegar Hitaveita
Suðurnesja hf (HS hf) var skipt í HS Orku hf og HS
Veitur hf.
HS Orka hf framleiðir heitt vatn og raforku í orkuveri
sínu í Svartsengi ásamt því að framleiða rafmagn í
raforkuveri á Reykjanesi.
HS Veitur hf annast raforkudreifingu á Suðurnesjum, í
Hafnarfirði, á Álftanesi, í hluta Garðabæjar, í
Vestmannaeyjum og í Árborg.
HS Veitur hf annast hitaveiturekstur á Suðurnesjum og í
Vestmannaeyjum og vatnsveiturekstur að stórum hluta á
Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum.
Starfsstöðvar HS Orku hf / HS Veitur hf eru 5 þ.e. í
Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Vestmannaeyjum, Árborg og í
Svartsengi. Hjá HS Orku hf starfa um 128 starfsmenn.