Íslenska Ánægjuvogin
Íslenska Ánægjuvogin er samstarfsverkefni nokkurra
Evrópuþjóða um mælingar á ánægju viðskiptavina helstu
fyrirtækja í nokkrum atvinnuvegum.
Markmiðið er að láta fyrirtækjum og í sumum
tilfellum neytendum í té samræmdar mælingar á ánægju
viðskiptavina.
Þá er og markmið verkefnisins að meta nokkra aðra
þætti sem tengjast ánægju viðskiptavina – hafa áhrif á
hana (t.d. ímynd og mat á gæðum) eða verða fyrir áhrifum
hennar (tryggð viðskiptavina). Mikilvægi mælinga á
ánægju viðskiptavina og áhrifaþáttum hennar er mikið þar
sem tryggilega hefur verið sýnt fram á í rannsóknum að
því ánægðari sem viðskiptavinir fyrirtækis eru því betri
afkomu má fyrirtækið búast við.
Í rannsókninni er ánægja viðskiptavina fyrirtækja metin
ásamt nokkrum öðrum yfirþáttum, svo sem ímynd, væntingum,
gæðum vöru og þjónustu, verðmæti og tryggð viðskiptavina.
Mælingar eru
staðlaðar
á milli fyrirtækja, atvinnugreina og þjóða; það er,
viðskiptavinir eru spurðir nokkurn veginn sömu spurninga
óháð fyrirtæki, atvinnugrein eða þjóð og þannig verða
niðurstöður
samanburðarhæfar.
Árið 2008
er sjöunda árið sem Íslenska
ánægjuvogin er notuð til að meta ánægju með rafveitur á
Íslandi og
við starfsfólk HS Veitna / HS Orku (Hitaveitu
Suðurnesja ) höfum unnið þessi verðlaun frá
upphafi mælinga.
Þátttakendur:
ü
Slembiúrtak úr þjóðskrá af öllu landinu, á aldrinum
16-79 ára.
ü
250 aðalviðskiptavinir fyrir hvert fyrirtæki.
Framkvæmd
ü
Símakönnun.
Mælingar og óvissa
ü
Mældir voru nokkrir yfirþættir í rannsókninni (s.s.
ímynd, gæði, ánægja, tryggð o.s.frv.)
ü
Á bak við hvern þátt eru nokkrar spurningar
ü
Hver þáttur er á kvarðanum 0 til 100, þar sem hærri tala
gefur til kynna betri frammistöðu fyrirtækis á þættinum
ü
Hver spurning að baki hvers þáttar er á kvarðanum 1 til
10, þar sem hærri tala gefur til kynna betri frammistöðu
fyrirtækis á spurningunni
ü
Óvissa er að jafnaði +/- tvö stig á kvarðanum 0 til 100
fyrir þættina. Þá er miðað við 95% marktektarmörk
Munur á okkar fyrirtæki á hverjum yfirþætti
fyrir sig og meðaltali allra rafveitna til samans þarf
að vera 2 til 3 stig til að hann sé marktækur.
Þannig er
ánægja
viðskiptavina HS
Veitna/HS Orku (Hitaveitu Suðurnesja)
(69,8) marktækt hærri en meðalánægja viðskiptavina allra
rafveitna (63,15).
|