|
Þann 4. mars, var undirritaður samningur á milli HS Orku hf og Carbon Recycling International ehf. vegna uppbyggingar metanól verksmiðju sem hreinsar koltvísýring (CO2) úr útblæstri orkuversins í Svartsengi. Samninginn undirrituðu forstjóri HS Orku hf, Júlíus Jónsson, og forstjóri CRI ehf, K-C Tran. Samningurinn verður lagður fyrir stjórn HS Orku hf til staðfestingar þann 15. mars n.k.
Hlutverk HS Orku skv. samningnum er að afla verksmiðjunni koltvístrings, raforku, gufu og kælivatns auk hitaveituvatns til upphitunar á verksmiðjurými. Raforkunotkun verður að jafnaði um 7 MW. Um 4,5 þúsund tonnum af koltvísýringi, sem annars færu út í andrúmsloftið, verður umbreytt í metanól. CRI stefnir að því að framleiða um 5 milljónir lítra af metanóli á ári selja metanólið sem íblöndunarefni í eldneyti fyrir bílaflota landsmanna, fyrst á suðvesturhluta landsins. Verksmiðjan mun rísa á lóð á milli Grindavíkurvegar og orkuversins í Svartsengi en þar hefur Grindavíkurbær samþykkt byggingarreit fyrir uppbyggingu CRI. HS Orka hefur tekið þátt í þróun verkefnisins og lítur á það sem spennandi kost þar sem eldsneytisframleiðsla er gerð endurnýjanleg með því að nota frumorkugjafa sem er endurnýjanlegur. Þar með sparast samsvarandi magn af endanlegum birgðum olíu.
HS Orka hf og CRI ehf munu áfram starfa saman að frekari uppbyggingu CRI á Íslandi.

Júlíus Jónsson forstjóri HS Orku hf og K-C Tran undirrita samning.
 Frá undirritun 4. mars. Ásbjörn Blöndal HS Orku hf, Jóhann Kristjánsson CRI, Andri Ottesen CRI, Júlíus Jónsson HS Orku hf, K-C Tran CRI, Albert Albertsson HS Orku hf.
|