Forsíða Raforkusala Framleiðsla HS Orka hf Mín síða
 
 

Fréttatilkynning

Ársreikningar HS Orku hf  

Hagnaður ársins nam um 6,8 milljörðum og eiginfjárhlutfall hækkar.



Reykjanesbæ 6. Febrúar 2010 – Ársreikningur HS Orku hf var samþykktur af stjórn félagsins á stjórnarfundi félagsins sem haldinn var í dag.

 

Hagnaður félagsins nam 6,8 milljörðum samanborið við tap að upphæð 11,7 milljörðum á árinu 2008. Þegar tekið hefur verið tillit til tekna og gjalda færðra á eigið fé er afkoman í heild jákvæð um um 8,15 milljarða samanborið við tap að upphæð 4,7 milljarða árið áður.  Betri heildarafkoma stafar í meginatriðum af hækkun á álafleiðum (framtíðarvirði álsölusamninga) og lækkun gengistaps frá árinu 2008. 

 

Samkvæmt ársreikningnum námu heildartekjur HS Orku hf  á árinu tæpum 6,3 milljörðum samanborið við 5,4 milljarða árið áður. Þessa tekjuaukningu má í meginatriðum rekja til þjónustutekna frá HS Veitum hf sem byggja á verksamningi milli  fyrirtækjanna. Samsvarandi aukning er þá á kostnaðarhlið fyrirtækisins. Aðrar tekjur námu 784 milljónum og skapast af sölu lands og hitaréttinda.

 

“Þrátt fyrir að árið hafi verið erfitt fyrir íslenskt efnahagslíf þá hefur HS Orku hf tekist að ná mjög hagstæðri rekstrarafkomu á árinu og náð að bæta eiginfjárstöðu verulega eða úr 16,3% í 33,5%,” segir Júlíus Jónsson, forstjóri  HS Orku hf. “Meginástæðan er hækkun álverðs og stöðugra gengi íslensku krónunnar og miklvægt að sú þróun haldi áfram”.  

 

Framleiðslu- og sölukostnaður nam 4,4 milljörðum samanborið við 3,1 milljarð árið áður. Aukning skapast vegna þjónustu við HS Veitur hf svo og aukningu kostnaðar við framleiðslu og sölu orkunnar. Önnur rekstrargjöld námu 499 milljónum samanborið við 377 milljónir á árinu 2008. Aukning annarra rekstrargjalda stafar aðallega af sérstakri afskrift þróunarkostnaðar að upphæð 142 milljónir.

Rekstrarreikningur og yfirlit  yfir heildarafkomu ársins 2009.

 

 

Frekari upplýsingar gefur:

Júlíus Jónsson, forstjóri, sími 422 5200 eða 860 5208

Um HS Orku hf

HS Orka er stærsta orkufyrirtæki landsins í eigu einkaaðila. Uppsett afl til raforkuframleiðslu er 175 megavött  frá virkjunum á Reykjanesi og í Svartsengi þar sem einnig er uppsett afl til 150 megavatta varmaframleiðslu. Stór hluti raforkuframleiðslunnar er seldur í USD til stórnotenda samkvæmt langtímasamningum. HS Orka hf áætlar að auka raforkuframleiðslu á Reykjanesi um 80 megavött og vinnur að rannsóknum á öðrum svæðum með það markmið að auka þar raforkuframleiðslu um u.þ.b. 150 megavött.


Fyrri fréttNæsta frétt

FréttirInnranet   
 
31.8.2010
HS Orka hf. - Interim Financial Statements 30 June 2010

The interim financial statements for 30 June 2010 of HS Orka hf. were approved at a Board of Directors' meeting 30 August 2010.



5.8.2010
Bilun í holu 24, niðurdælingarholu.

Bilun kom upp í niðurdælingarholu um kl. 19:00 í gær miðvikudaginn 4. ágúst.



4.6.2010
Gufuhverfill kominn til landsins.

50 MW gufuhverfill og tilheyrandi búnaður í fyrirhugaða stækkun Reykjanesvirkjun var hífður úr skipi og á íslenska grund miðvikudaginn 2. júní s.l.



Fleiri fréttir