Forsíða Raforkusala Framleiðsla HS Orka hf Mín síða
 
 

Stækkun Reykjanesvirkjunar og frekari nýting jarðhitavökva.

Frummatsskýrsla, mars 2009



Lokið er gerð frummatsskýrslu vegna stækkunar Reykjanesvirkjunar og frekari nýtingu jarðhitavökva. Framkvæmdaraðili er HS OrKa. Matsvinnan hefur verið unnin í samvinnu HS Orku og VSÓ Ráðgjafar.

Í frummatsskýrslu er fjallað um helstu umhverfisáhrif af stækkun Reykjanesvirkjunar um 50 MWe og byggingu og rekstri 30-50 MWe pækilvirkjunar. Vegna stækkunarinnar er áætlað að bora þurfi 8 vinnslu- og varaholur til öflunar orku auk þess að auka þarf sjónám.

Tilgangur framkvæmdarinnar er að auka framleiðslugetu Reykjanesvirkjunar til að mæta eftirspurn eftir raforku, m.a. vegna áforma um byggingu álvers í Helguvík, stækka varmatökusvæði virkjunarinnar og bæta nýtingu þeirrar orku sem aflað er.

Helstu neikvæð umhverfisáhrif vegna framkvæmdanna samkvæmt matsvinnunni verða á hljóðvist, ferðamennsku og jarðhitageyminn. Jafnframt er óvissa um umhverfisáhrif framkvæmdanna. Annars vegar felst óvissan í áhrifum vinnslu á jarðhitageyminn sem auðlind en einnig um afleidd og óbein áhrif vinnslunnar sem koma fram á yfirborði s.s. í breytingum á virkni hvera, sem aftur hefur áhrif á lífríki.

Skipulagsstofnun hefur tekið frummatsskýrsluna til athugunar. Kynning á frummatsskýrslu og réttur til að skila inn athugasemdum er frá 26. mars til 8. maí 2009. Athugasemdir eða ábendingar skal senda skriflega til Skipulagsstofnunar.

Niðurstöður mats á umhverfisáhrifum verða kynntar fimmtudaginn 2. apríl 2009 kl. 17:00, í Eldborg í Svartsengi.

Hægt er að nálgast frummatsskýrsluna hér á heimasíðu HS Orku en einnig á heimasíðu VSÓ Ráðgjafar (www.vso.is).

 

Frummatsskýrsla:

Frummatsskýrsla – .pdf

Frummatsskýrsla samantekt - .pdf

 

Sérfræðiskýrslur:

Reiknilíkan af jarðhitakerfinu á Reykjanesi, ÍSOR - 07280 Reiknilikan Reykjanes ISOR.pdf

Efnagreiningar affallsvatns 2007, ÍSOR - 07280 Affallsvatn ISOR.pdf

Efnagreiningar affallsvatns 2008, ÍSOR - 07280 Affallsvatn ISOR 2008.pdf

Gufu- og vatnsgæðaeftirlit, ÍSOR - 07280_gufu-vatnsgaedaeftirl-ISOR_2006_2007.pdf

Jarðefnafræðilegt vinnslueftirlit 2006 og 2007, ÍSOR - 07280_Vinnslueftirlit ISOR.pdf

Gróðurfar og fuglalíf, Náttúrufræðistofnun Íslands - 07280_grodur_fuglar_NI.pdf

Ferðamenn og útivistarfólk, RRF - 07280 Ferdamenn á  Reykjanesi 2007_RFF.pdf

Möguleikar á vöktun á fjörulífverum, Hafrannsóknastofnunin - 07280_2008_Vöktun_fjöru_Hafro.pdf

Kort

Kort 1. Yfirlitskort - 07280_MÁU-F-Y-01.jpg 

Kort 2. Stækkun Reykjanesvirkjunar. Yfirlitskort  - 07280_MÁU-F-Y-02.jpg

Kort 3. Borholur og borstefnur - 07280_MÁU-F-G-01.jpg

Kort 4. Jarðfræði og jarðmyndanir - 07280_MÁU-F-G-02.jpg

Kort 5. Landslag - 07280_MÁU-F-G-03.jpg

Kort 6. Fornminjar - 07280_MÁU-F-G-04.jpg

Kort 7. Gróður - 07280_MÁU-F-G-05.jpg

Kort 8. Kríuvarp 1998 og 2008 - 07280_MÁU-F-G-06.jpg

Kort 9.1 Hljóðvist. Rekstrartími fyrir framkvæmdir - 07280_MÁU-F-G-07.jpg

Kort 9.2 Hljóðvist. Framkvæmdartími - 07280_MÁU-F-G-08.jpg

Kort 9.3 Hljóðvist. Rekstrartími eftir framkvæmdir - 07280_MÁU-F-G-09.jpg

Kort 10. Ferðamannaleiðir og myndatökustaðir - 07280_MÁU-F-G-10.jpg

Ljósmyndir sem sýna útsýni frá ýmsum stöðum á Reykjanesi - 07280_Myndahefti.pdf

 

 

 

 

 

 


Fyrri fréttNæsta frétt

FréttirInnranet   
 
31.8.2010
HS Orka hf. - Interim Financial Statements 30 June 2010

The interim financial statements for 30 June 2010 of HS Orka hf. were approved at a Board of Directors' meeting 30 August 2010.



5.8.2010
Bilun í holu 24, niðurdælingarholu.

Bilun kom upp í niðurdælingarholu um kl. 19:00 í gær miðvikudaginn 4. ágúst.



4.6.2010
Gufuhverfill kominn til landsins.

50 MW gufuhverfill og tilheyrandi búnaður í fyrirhugaða stækkun Reykjanesvirkjun var hífður úr skipi og á íslenska grund miðvikudaginn 2. júní s.l.



Fleiri fréttir