Home Energy sale. Production HS Orka hf My page
 
 
Production
Svartsengi
Reykjanes
Vestmannaeyjar
Helguvík
New projects - researches
Krýsuvíkursvæði
Trölladyngja
Production flow
Electricity
Heating
Drill sites
Drilling
Drill sites
Other
Production flow
 
Fróðleikur um Reykjanesið

Reykjanesi hefur verið lýst sem undarlegum skapnaði, sambland af frosti og funa, eins og þar stendur. Ekkert er þar nógu stórvaxið til að geta kallast hrikalegt, en allt er þar úfið, svipþungt, grettið og grimmúðlegt, og þó yfir því einhver hátíðleiki og alvöruyndi, sem hrífur hugann.

Gamlir, æruverðugir eldgígar liggja frá nesinu svo langt norður og austur í fjallgarðinn sem augað eygir. Þeir eru misstórir og mismunandi að útliti, en allir hafa þeir spúð eldi og eimyrju einhvern tíma.

Á duggarabandsárunum þeirra hefir mátt nefna Reykjanes með réttu. Nú er þar orðið of lítið til nafnfesti. Með því að smella á neðanverðar flýtileiðir, má nálgast ýmsan fróðleik um það sem Reykjanes hefur að geyma.